25.05.1918
Efri deild: 27. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (1053)

52. mál, rannsókn mómýra

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Það er rjett, að stjórnin hefir veitt slíkan styrk, og fór hún þar eftir till. þeirri, er lá fyrir síðasta Alþingi og samþykt var í háttv. Nd., en feld með eins atkv. mun hjer í háttv. Ed. Auk þess bárust henni sterkar óskir um það frá bæjarstjórn Reykjavíkur. Og nú er maðurinn aftur kominn heim úr utanför sinni.