25.05.1918
Efri deild: 27. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1054)
52. mál, rannsókn mómýra
Halldór Steinsson:
Jeg verð að lýsa óánægju minni yfir framkomu hæstv. stjórnar um þetta. Hún hefir engan rjett til þess að meta meira vilja háttv. Nd. en háttv. Ed. Báðar deildirnar eru fullkomlega jafnrjettháar. Þótt óskir hafi komið fram frá einhverjum Reykvíkingum um þessa styrkveitingu, þá rjettlætir það ekki framkomu stjórnarinnar í þessu máli.