01.06.1918
Efri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1068 í B-deild Alþingistíðinda. (1109)

57. mál, námsstyrkur til háskólasveina

Jóhannes Jóhannesson:

Fjárveitinganefnd leit svo á, að það lægi svo í augum uppi, að hjer væri um sanngjarnt mál að ræða, að það þyrfti ekki að taka ástæðurnar fram í nefndarálitinu eða umræðunum um málið, og jeg vænti, að allir háttv. deildarmenn viðurkenni þetta og samþykki till., eins og hún liggur fyrir.