01.06.1918
Neðri deild: 37. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1090 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)
78. mál, hækkun á styrk til skálda og listamanna
Flm. (Bjarni Jónsson); Aðalástæðurnar fyrir till. þessari hefi jeg greint í greinargerðinni. Þar sem þessi till. fer fram á fjárveitingu, verða auðvitað 2 umr. um hana. Finst mjer því vel við eiga að vísa málinu til fjárveitinganefndar til athugunar. Mun jeg ekki skýra nánar frá ástæðunum fyrir till. en jeg hefi þegar gert skriflega, en vildi að eins mælast til þess, að háttv. deild vísi till. til síðari umr. og fjárveitinganefndar.