15.06.1918
Neðri deild: 50. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (1213)

97. mál, efniviður til opinna róðrarbáta

Bjarni Jónsson:

Mjer þykir vænt um að sjá þessa till, en þykist þó ekki þurfa að mæla með henni. Bæði hefir háttv. frem. (S. St.) og háttv. þm. Borg. (P. O.) gert það rækilega, og svo bar jeg sjálfur fram þessa sömu till. fyrir nokkru. Mætti vísa háttv. þm. til ræðu minnar í því máli, er jeg auk þess hefi látið prenta. Jeg skal ekki endurtaka það, sem jeg sagði þá, en vænt þætti mjer um, ef nefndin vildi tína upp aftur þau atriði, er þeir drápu fyrir mjer um daginn, þar til þau væru öll komin til skila.