20.06.1918
Neðri deild: 52. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1151 í B-deild Alþingistíðinda. (1234)
100. mál, lán handa klæðaverksmiðjunni á Álafossi
Sveinn Ólafsson:
Mjer virðist full tryggilega gengið frá till. þessari og engin þörf á breytingu. Það skiftir litlu, hvort nefndur er 1. veðrjettur eða ekki, úr því að till. áskilur stjórninni óskoraðan rjett til að heimta það veð, sem henni þykir fullnægjandi. Jeg get því ekki betur sjeð en að þetta sje svo tryggilega útbúið, sem framast má verða; jeg veit ekki, hvort hægt er að ganga betur frá því. Bendingar frsm. (Þorl. J.) breyta ekki skýlausum ákvæðum tillögunnar.