08.05.1918
Efri deild: 15. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (1333)

15. mál, útibú í Vestmannaeyjum

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Þar sem háttv. flm. (K. E.) gerði það ekki beinlínis að till. sinni, að málinu væri vísað til nefndar, vil jeg gera það að minni till., að því verði vísað til allsherjarnefndar.

Till. á þgskj. 64, um útibú á Siglufirði, var vísað til allsherjarnefndar í háttv. Nd.; bar hún sig saman við bankastjórnina og fjekk góðar undirtektir. Málum, sem, eins og þetta, eru tekin úr út stóru kerfi, er sjálfsagt að vísa til nefndar.