23.05.1918
Efri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í B-deild Alþingistíðinda. (1382)

62. mál, styrkur til að kaupa björgunarbát

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Jeg sje, að þegar er fram komið álit háttv. fjárveitinganefndar, á þgskj. 191, um þetta mál, og þar sem hún mælir með þingsályktunartill. og hefir athugað fjárhagshlið hennar, án þess að leggja nokkurn þröskuld fyrir, að hún næði fram að ganga, vona jeg, að enginn annar þröskuldur komi fyrir málið og að það verði afgreitt til háttv. Nd. sem fyrst.