01.06.1918
Efri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (1421)

67. mál, þóknun handa Jóhannesi pósti Þórðarsyni

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Eins og háttv. þingdm. er kunnugt, er frsm. fjárveitinganefndardeildarinnar (E. P.) fjarverandi, og verða því ekki langar framsögur í málum þeim, sem frá henni komu.

Í þessu máli læt jeg því nægja að vísa til nál. á þgskj. 363, og vil jeg leyfa mjer að leggja til, fyrir nefndarinnar hönd, að till. verði samþ. með brtt. nefndarinnar á þgskj. 263.