21.05.1918
Neðri deild: 27. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (145)

36. mál, stimpilgjald

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg ætla að eins að lýsa yfir því, að mjer finst öll sanngirni mæla með brtt. á þgskj. 161, og því hefi jeg fallist á hana, og vil jeg leyfa mjer að hvetja háttv. deild til þess að samþykkja hana. Sama get jeg sagt um brtt. háttv. nefndar á þgskj. 167.