27.05.1918
Efri deild: 28. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (1450)

68. mál, bátaferðir á Faxaflóa

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Jeg hefi litlu við það að bæta, sem jeg sagði við 1. umr. Jeg vil að eins endurtaka það, að með till. þessari er málið að mestu leyti lagt í hendur stjórnarinnar, og er farið fram á það, að hún hafi óbundnar hendur til að hækka styrkinn að nokkru, ef ekki fást viðunandi samningar á annan hátt.