06.05.1918
Efri deild: 14. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í C-deild Alþingistíðinda. (1613)

3. mál, fráfærur ásauðar

Forseti:

Jeg tók það fram um daginn, að jeg tæki mál þetta á dagskrá strax og nefndin óskaði þess, og það hefi jeg gert. Úr því nefndin óskar nú, að málið sje tekið út af dagskrá, þá finst mjer jafnsjálfsagt að verða við tilmælum hennar, og tek því málið út af dagskrá.