06.05.1918
Neðri deild: 17. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í C-deild Alþingistíðinda. (1617)

33. mál, veðurathugunarstöð í Reykjavík

Forseti:

Jeg leyfi mjer að benda á, að þó að málið komi frá nefnd, þá er rjett, að það sje einnig athugað af fjárveitinganefnd, með því að hjer er um útgjöld úr landssjóði að ræða, og vil jeg því gera það að tillögu minni, að fjárveitinganefnd verði falið að taka það til nánari athugunar.