14.06.1918
Efri deild: 44. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í C-deild Alþingistíðinda. (1782)
56. mál, fólksráðningar
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg hefi áður talað á móti þessu frv., og skal því ekki endurtaka það, sem jeg hefi haft á móti því, en vil að eins, að það sjáist í þingtíðindunum, að jeg er jafnt á móti málinu nú eins og áður. Frv. er alt of nærgöngult gagnvart almenningi. Og það verður erfitt fyrir lögregluna að reka menn hingað og þangað í vistir, að þeim nauðugum. Yfir höfuð álít jeg tæpast sæmandi fyrir Alþingi að samþykkja svona frv.