28.05.1918
Neðri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 701 í C-deild Alþingistíðinda. (2070)

69. mál, skipun læknishéraða o. fl.

Pjetur Jónsson:

Hv. deild ræður auðvitað, hvað hún gerir við málið. En jeg hygg, að ekki sje þægilegt fyrir fjárveitinganefnd að taka málið til meðferðar, þar sem nefndin hefir áður borið fram till. í málinu, sem reist var á öðrum grundvelli. Jeg get að minsta kosti ekki sveigt mitt geð til þess. Hjer eru líka fleiri samskonar erindi á ferðinni, og hefi jeg ekki álitið, að fjárveitinganefnd hefði umboð nje ástæðu til að sinna þeim.