01.06.1918
Neðri deild: 37. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í C-deild Alþingistíðinda. (2080)

69. mál, skipun læknishéraða o. fl.

Flm. (Einar Arnórsson):

Jeg tók það fram áðan, að jeg væri samþykkur hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) um, að vísa bæri slíkum málum sem þessum til fjárveitinganefndar, og sje jeg því ekki að þessu sinni ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. Vil jeg því biðja hv. deild um að vísa málinu til fjárveitinganefndar, og fel jeg svo henni að fara með það.