28.06.1918
Neðri deild: 58. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í C-deild Alþingistíðinda. (2153)
105. mál, bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna o. fl.
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg var ekki viðlátinn til þess að hlusta á ræðu hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) og veit því ekki, hvort hann hefir sagt nokkuð, sem jeg þarf að svara. Aftur á móti hlustaði jeg á ræðu hv. þm. Borgf. (P. O.), en finn ekki ástæðu til að svara henni miklu.
Mjer kom ekki á óvart, þó að sá hv. þm. (P. O.) vildi ekki fallast á tillögu mína, um uppbót handa hv. þm., þar sem hann vildi ekki þiggja uppbótina í fyrra. Það er rjett, að um það var talað við hv. fjárveitinganefnd, hvort hún vildi eigi flytja frv. um laun alþingismanna. Jeg hafði fyrir nokkru hugsað mjer að bera fram lagafrv., er ákvæði til fulls um kaup þingmanna, og fanst mjer þá ekki of mikið, þó að það yrði 50% hærra en það er nú. Mjer fyrir mitt leyti liggur ekki sjerlega þungt á hjarta, hvernig farið verður með þessa tillögu nú, en mjer fanst það skylda mín að koma fram með ákveðna tillögu, svo að hún yrði þá samþykt löglega, ef hún yrði samþykt á annað borð, í stað þess að fara sömu leiðina og í fyrra, sem deila mátti um hvort var lögleg eða ekki. Það er því ekkert furðulegt, þótt jeg, sem þetta mál heyrir undir, komi með tillögu í þessa átt. Og þá gat jeg ekki annað en talið sjálfsagt, að uppbótin yrði að minsta kosti 30%, eins og í fyrra, og held jeg, að allir hv. þm. hafi fengið þá uppbót, að undanteknum hv. þm. Borgf. (P. O.). En að deila mikið um það, hvort uppbótin skuli nema 30, 40 eða 50%, það finst mjer varla vert. Mjer fyrir mitt leyti þykir sanngjarnt að greiða að minsta kosti 40%, þar sem það er í ráði að hækka kaup flestra annara starfsmanna landsins, fram yfir það, sem þeim var ætlað í fyrra. Mjer liggur það í ósköp ljettu rúmi, þó hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) líti svo á, að jeg hafi komið með þessa tillögu til þess að blíðka hv. þm. Mjer datt ekkert slíkt í hug, enda á jeg bágt með að hugsa mjer, að hv. þm. sjeu svo lítilþægir, að þetta mundi nægja, ef þyrfti að blíðka þá. Að þessi tillaga kemur svona seint fram er beinlínis fyrir þá sök, að sumir hv. þm. álitu rjettara að bíða með að ákveða þessa uppbót þar til liðið væri nokkuð á þingið. Og jeg verð að segja, að jeg sje ekki betur en að þessi tillaga komi heppilega inn í þetta frv. Eins og jeg sagði áður í dag, þá legg jeg ekki neina áherslu á það, hvort sumir hv. deildarmenn vilji undanskilja þá þm., er búsettir eru í Reykjavík, þessari hækkun. Jeg geri ráð fyrir, að það muni ekki heldur verða með kappi sótt frá þeirra hálfu, er hjer búa, og býst jeg við, að það verði alt komið undir áliti þeirra hv. þm., er búa utan Reykjavíkur.
Jeg held svo, að jeg þurfi ekki að segja nokkuð frekara í þessu máli, og það verð jeg að segja, að jeg efast um, að það gagni mikið að halda langar tölur um þetta frv. Jeg skal að eins leyfa mjer að láta þess getið, að það má vera, að breyta þurfi einhverju orðalagi tillögunnar, til þess að það komi ljóst fram, sem ætlast er til, að þessi hækkun skuli koma í framkvæmd þegar á þessu aukaþingi. Þetta er hægt að athuga til 3. umr.