01.07.1918
Neðri deild: 60. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í C-deild Alþingistíðinda. (2192)
80. mál, dýrtíðaruppbót af aukatekjum
Gísli Sveinsson:
Það er rjett, sem hv. frsm. (M. P.) tók fram, að jeg og fleiri af þeim, er fluttu till. þessa, höldum fast við hana, og sje jeg eigi ástæðu til annars en ráða hv. deild til að samþykkja hana. Nú hefir verið ákveðið í þessari hv. deild, að allir læknar skuli verða aðnjótandi 500 kr. launahækkunar, og þarf jeg eigi að taka það fram, að sú leið er að mínu skapi verri, að landssjóður greiði uppbót eða viðbót við föstu launin. En eins og kunnugt er, þá er það ekki fáanlegt, að þingið samþykki, að þeir, sem lækninn nota, greiði honum uppbót að sínum hluta. En nú er það svo frá mínu sjónarmiði og líka fullyrt af öðrum, að sú launauppbót, sem læknum er ákveðin í frv. um bráðabirgða launabætur embættismanna, nægi ekki til þess, að þeir sætti sig allir við að vera kyrrir í embætti sínu, þó að sumir mundu verða það eftir atvikum. Og það tel jeg ófært, að stofnað sje í þann voða, að læknar fari frá embætti sínu.
Það gerir læknum leið þá, sem farið er fram á í till. þessari, aðgengilegri, að í henni er gert ráð fyrir, að þeir fái meiri hækkun en ákveðin er í frv., miðað við tekjur þeirra og fyrirhöfn við læknastörfin. Og get jeg ekki fallið frá því, að þetta sje rjettlátasta leiðin, eigi að eins að lögum, heldur og gagnvart læknunum sjálfum og sjúklingunum.
Jeg fæ ekki sjeð, að það sje á móti þessari till., þó að þeir, sem mikil störf hafa á hendi, fái hærri uppbót.
Hjer er borin fram brtt., sem jeg veit ekki hvort flm. halda fast við, um að þessi dýrtíðaruppbót verði 100%. En af því að þessi till. er miðuð við það ástand, sem var í ákvörðunum þingsins, en ekki er nú, hygg jeg, að hún verði tekin aftur. Þá liggur að eins fyrir till. mín, og vona jeg, að hv. deild taki henni vel, því að með henni er þó að nokkru bætt úr ástandinu, hvað þetta mál snertir.