21.05.1918
Neðri deild: 27. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (233)
63. mál, dýrtíðar- og gróðaskattur
Fjármálaráðherra (S. E.):
Hv. þm. Stranda. (M. P.) misskildi mjög frv., en það verður ekki misskilið, að gróðaskatturinn byrjar fyrst fyrir ofan 30 þúsundin; þetta hefi jeg tekið fram skýrt hjer í háttv. Nd., og um það getur ekki verið að villast.
Það var óþarfi fyrir háttv. þm. (M. P.) að fara að taka upp fyrir háttv. 1. þm. G. K. (B. K.), því að hann ætti að vera maður til þess að svara fyrir sig í þessum og þvílíkum málum.
Annars get jeg skotið því fram, úr því að jeg stóð upp, að það er mjög eðlilegt, að þýsku „junkararnir“ komi fram með mótmæli gegn auknum tekjuskatti, því að þar eru auðvitað rýrðir hagsmunir þeirra.