10.07.1918
Neðri deild: 67. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (2367)

109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld

Sigurður Sigurðsson:

Jeg vil að þessu sinni að eins leyfa mjer að láta þess getið, að þar sem háttv. þm. S. Þ. (P. J.) gat um afskifti bjargráðanefndar af þessu máli, þá nær það ekki til mín. Jeg hefi ekkert verið við þetta mál riðinn fram að þessu; eg var ekki heima, þegar bjargráðanefndin var að undirbúa það, og síðan jeg kom heim, hefi jeg ekki haft tíma til þess að athuga það nánar fyr en nú á síðustu stundu. Þegar því er verið að tala um afskifti bjargráðanefndar, þá nær það ekki til mín. Jeg er undanskilinn. Að öðru leyti skal jeg ekki að þessu sinni gera grein fyrir afstöðu minni til málsins, og geymi mjer það til 2. umr.