24.04.1918
Neðri deild: 9. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (349)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Einar Jónsson:

Jeg ætla mjer ekki að mæla á móti frv. þessu, en háttv flm. (Þorl. J.) fórust orð á þá leið, að ekki mundi að ástæðulausu, að Björn Kristjánsson færi frá bankanum. Mun það vafalaust rjett vera, en jeg vil að eins biðja háttv. flutnm. (Þorl. J.) að skýra frá, hverjar þessar ástæður sjeu.