24.04.1918
Neðri deild: 9. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (350)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Flm. (Þorleifur Jónsson):

Jeg hefi engu við það að bæta, er jeg áður sagði. Úr því að bankastjórinn fer frá, veit jeg, að hann fer ekki að ástæðulausu. Ástæðurnar geta verið margar, svo sem heilsubrestur og það, að maðurinn er nú hniginn að aldri. Má háttv. þm. (E. J.) vita, að slíkar ástæður eru góðar og gildar.