27.04.1918
Neðri deild: 11. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (352)

20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni

Sigurður Sigurðsson:

Jeg ætla ekki að hefja neinar umr. um þetta mál. En á það vildi jeg benda, að jeg kynni betur við, að mál þetta færi ekki svo gegnum háttv. deild, að því væri ekki vísað til nefndar. Jafnvel þótt frv. sje stutt og flutningsmenn þess margir, þá hefir þó þetta mál, að því er mjer virðist, fleiri hliðar, sem vert er að athuga. Mæli jeg þetta ekki af neinum persónulegum ástæðum gagnvart þeim manni, sem hjer er um að ræða, Birni bankastjóra Kristjánssyni, heldur frá almennu sjónarmiði.

Geri jeg það því að till. minni, að 2, umr. sje frestað, og frv. vísað til allsherjarnefndar.