04.05.1918
Neðri deild: 16. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (450)

27. mál, stækkun verslunarlóðarinnar í Ólafsfirði

Flm. (Stefán Stefánsson):

Við flutningsmenn þessa frv., um stækkun verslunarlóðarinnar í Ólafsfirði, væntum þess, að það fái að ganga til 3. umr.. og búumst þá við að geta flutt ákveðna till. um breidd lóðarinnar frá sjó. Við höfum sent símskeyti með fyrirspurn um þetta atriði til Olafsfjarðar og fáum að líkindum svar nú í dag eða á morgun.

Að öðru leyti sje jeg ekki ástæðu til að ræða málið frekar.