04.07.1918
Efri deild: 57. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (798)

109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld

Fjármálaráðherra (S. E):

Út af ummælum háttv. frsm. (G. G.) um verð á síld til Svíþjóðar vil jeg að eins geta þess, að enn eru ekki gerðir fastir samningar um síldina, og því ekki auðið að segja, hvert verðið verður.