10.07.1918
Neðri deild: 67. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (831)

109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld

Fjármálaráðherra (S. E.):

Það er alls ekki ætlun mín, að fara að auka umræður um þetta mál nú, en mjer skildist á háttv. þm. N. Þ. (P. J.) að nefndin hugsaði sjer að koma fram með brtt. um ágóðann. (P. J.: Þær eru komnar fram). Jæja, en jeg hefi líka hugsað mjer að koma fram með brtt. um greiðslufrestinn.