02.09.1918
Efri deild: 2. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (121)

Kosning fastanefnda

forseti:

Samkvæmt 16. gr. þingskapanna ber að kjósa menn í fastanefndir. En þar sem ekki er gert ráð fyrir, að störf þeirra nefnda verði mikil á þessu þingi, og mundu enda ganga greiðast ef sama nefndaskipun helst, þá vil jeg gera það að till. minni, að nefndaskipunin frá síðasta þingi haldist óbreytt.

Voru síðan afbrigði um það leyfð, og till. um, að nefndaskipun hjeldist óbreytt, samþ. í e. hlj.

Sjá Alþt. 1918 (29. löggjafarþing) B. 40–42.