09.09.1918
Neðri deild: 7. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (140)

Þinglausnir

forseti:

Þar sem till. á þgskj. 11, um sölu á kjöti o. fl., hefir verið samþykt, þá er lokið þeim málum, sem legið hafa fyrir hv. deild, og er nú ekki annað eftir en að undirskrifa gerðabókina, en þar sem hún er ekki tilbúin, þá verður hún síðar lögð fram á skrifstofuna til athugunar og undirskriftar.

Um leið og jeg slít þessum síðasta fundi þessarar deildar vil jeg leyfa mjer að þakka öllum háttv. þm. fyrir góða samvinnu og óska þeim góðrar heimferðar og heimkomu.

Að svo mæltu segi jeg fundi slitið.