06.09.1918
Neðri deild: 3. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (22)
1. mál, dansk-íslensk sambandslög
Frsm. (Bjarni Jónsson):
Jeg mun verða stuttorður um málið í þessari fyrstu ræðu minni, sökum þess, að meiri hluti nefndarinnar telur sig hafa í nefndaráliti sínu tekið fram öll þau aðalatriði, sem ástæða er til að ræða um, og skýrt þau svo greinilega, sem þörf er á, því að ekki er heimtandi, að hvert eitt smáatriði sje rakið og rætt á vísindalegan hátt út í ystu æsar; til þess þyrfti heila bók. En hins vegar hefi jeg hugsað mjer, að jeg sem framsögumaður sæti fyrir svörum, ef ráðist verður á röksemdaleiðslur í nefndarálitinu.
Jeg skal láta þess getið, að jeg sem skrifari meiri hluta nefndarinnar spurði hv. minni hluta (M. T.), hvort hann óski eigi eftir, að nefndarálit hans yrði samferða okkar áliti, en hann kvaðst eigi mundu láta sitt álit koma fram fyr en í efri deild, þar sem hann á sæti. Þetta gerði jeg til þess, að enginn gæti sagt, að meiri hlutinn hefði viljað beita minni hlutann ofbeldi, eða fara á bak við hann. Þykir mjer rjett að taka þetta fram, svo að það sje lýðum ljóst, hvers vegna álitin urðu ekki samferða. Þá skal jeg og geta þess, að við hv. 2. þm. Árn. (E. A.) höfum skift þannig með okkur framsögunni, að jeg sitji fyrir svörum, þar sem er að ræða um hina almennu hlið málsins, fullveldi eða eigi fullveldi o. s. frv., en hv. 2. þm. Árn. (E. A.) taki einkum að sjer hin einstöku atriði frv., án þess þó að okkur sje meinað að koma hvor inn á annars svið, þar sem við teljum þess þörf.
Skal jeg svo eigi lengja erindi mitt að þessu sinni, en vísa til nefndarálitsins og fylgiskjala þess. Í lok ræðunnar get jeg þess þó, að meiri hluti sameinaðra fullveldisnefnda efri og neðri deildar Alþingis, 11 menn af 12, hefir orðið sammála um frv. og leggur til, að það sje samþykt óbreytt.