07.09.1918
Efri deild: 4. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (51)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Kristinn Daníelsson:

Áður en gengið er til atkvæða um, hvort leyfa skuli afbrigði um mál þetta, vildi jeg gjarnan heyra beina yfirlýsingu minni hl. um það, hvort hann getur tjáð sig því fylgjandi eða ekki.

En fyrir mína hönd get jeg lýst yfir því, að jeg felli mig ekki vel við hraða þann, sem hafður er á, málinu.