09.09.1918
Efri deild: 5. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í B-deild Alþingistíðinda. (77)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Fjármálaráðherra (S. E.):

Hv. þm. Ísaf. (M. T.) sagði, að jeg hefði verið óánægður með 6. gr. frv. í sumar. Þetta er alveg rjett; jeg lýsti yfir því við 2. umr. málsins og get vitnað til þess, sem jeg sagði þá hjer í deildinni.