08.09.1919
Efri deild: 51. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (1128)

23. mál, stofnun lífeyrissjóðs fyrir embættismenn

Frsm. (Guðm. Ólafsson):

Frv. þetta er stjórnarfrv., og hefir samvinnunefnd launanefnda athugað það og leggur til, að það sje samþykt. Álit nefndarinnar er á þgskj. 545, og rituðu tveir nefndarmenn undir það með fyrirvara, en þar sem langt er síðan nál. kom fram, og þeir hafa enga brtt. gert, má gera ráð fyrir, að þeir láti sjer frv. lynda, þótt þeir sjeu ekki alls kostar ánægðir. Jeg mæli því með, að frv. verði samþykt.