13.09.1919
Efri deild: 55. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1369 í B-deild Alþingistíðinda. (1132)

23. mál, stofnun lífeyrissjóðs fyrir embættismenn

Frsm. (Guðm. Ólafsson):

Jeg vildi að eins geta þess, að atriði þetta kom þó nokkuð til umr. í launamálanefndinni, og vildi hún halda sjer við það, sem í frv. stendur, enda verður ekki sjeð, að það geti talist órjettlátt.