01.09.1919
Neðri deild: 52. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1577 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)

5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands

Forsætisráðherra (J. M.):

Mjer sýnist full ástæða til, að málið komist bráðlega til Ed. En það þarf ekki að útiloka breytingar þar, þó að till. komist ekki hjer að. Þingið hefir nú staðið lengi, svo að jeg tel rjett að láta málið ganga þegar til Ed.