23.09.1919
Neðri deild: 71. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1661 í B-deild Alþingistíðinda. (1378)

5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg sje enga ástæðu til þess fyrir hv. þm. að fjölyrða svo mjög um þetta mál. Þessi hugtök eru bæði notuð í lögum, og notar t. d. háskólinn sterku myndina, en jeg fæ ekki betur sjeð en að hann muni samt beygja sig fyrir þessu, þegar það er orðið lögfest. (E. A.: Hitt er líka lögfest).