08.08.1919
Efri deild: 25. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1705 í B-deild Alþingistíðinda. (1442)

66. mál, aðflutningsgjald af salti

Fjármálaráðherra. (S. E.):

Viðvíkjandi fyrri brtt. læt jeg mjer nægja að vísa til þess, sem jeg hefi áður sagt. En um hina síðari er það að segja, að æðierfitt mun vera að segja fyrirfram nákvæmlega, hve nær hallinn verði að fullu borgaður. Mjer er líka kunnugt um, að hv. Nd. mun eigi vilja fallast á þessa breytingu. Legg jeg því til, að frv. verði samþ. óbreytt.