22.08.1919
Efri deild: 37. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1755 í B-deild Alþingistíðinda. (1577)

113. mál, brúargerðir

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg skil lögin svo, að ekki sje ætlast til, að tekið sje upp í fjárlögin fje til brúargerða. heldur sje meiningin sú, að lán verði tekið, en vextir og afborganir af því verði sett í fjárlögin. Skilji jeg þetta rjett, er hjer um mjög viðsjárverða pólitík að ræða