07.08.1919
Neðri deild: 27. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1763 í B-deild Alþingistíðinda. (1592)

111. mál, greiðsla af ríkisfé til konungs og konungsættar

Forsætisráðherra (J. M.):

Eins og getið er í greinargerð fyrir frv., þá er það komið fram að tilmælum stjórnarinnar. Og jeg býst ekki við, að frekara þurfi að segja um það. Þetta er í rauninni ekki annað en sjálfsögð afleiðing af sambandslögunum.