21.08.1919
Efri deild: 36. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1766 í B-deild Alþingistíðinda. (1604)
111. mál, greiðsla af ríkisfé til konungs og konungsættar
Frsm. (Eggert Pálsson):
Nál. í máli þessu er mjög stutt; samt sem áður geri jeg ráð fyrir, að ekki sje þörf langrar framsögu. Allir munu sammála um, að málið eigi fram að ganga og meira að segja að best eigi við, að sem minstar umræður verði um það hjer í deildinni. Legg jeg til. fyrir hönd nefndarinnar, að frv. verði samþykt óbreytt og umræðulaust.