25.08.1919
Efri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1770 í B-deild Alþingistíðinda. (1626)

121. mál, löggilding verslunarstaðar á Mýramel

Guðmundur Ólafsson:

Eins og menn gátu heyrt af orðum mínum áðan, var það ekki af óvinskap við frv., að jeg tók til máls, heldur þótti mjer ekki minna mega vera en að vjer fengjum að vita, hvað um væri beðið og hvar staðurinn væri.