04.09.1919
Efri deild: 48. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1857 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)

134. mál, húsaskattur

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Jeg mun að minsta kosti til að byrja með, láta mjer nægja að vísa til nál. á þgskj. 644. Formaður nefndarinnar hefir undirritað nál. með fyrirvara, og mun hann gera grein fyrir afstöðu sinni til frv. Aðrir nefndarmenn hafa orðið sammála um að leggja til, að málið verði látið ná fram að ganga í þessari hv. deild.