22.08.1919
Efri deild: 37. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1919 í B-deild Alþingistíðinda. (1948)

68. mál, gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekti og brjóstsykri

Fjármálaráðherra (S. E.):

Tilætlun mín var að gera sömu uppástungu og hv. 1. þm. Rang. (E. P.). Jeg er lítt kunnur þessum efnum, en þó ætla jeg, að ekki þurfi eitt pd. af hráu tóbaki í 1 pd. af vindlum. Að því er snertir leyfisbrjefin, þá þarf ekki verslunarleyfi til svona atvinnurekstrar.