06.09.1919
Neðri deild: 57. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1934 í B-deild Alþingistíðinda. (1979)

49. mál, sérstakt læknishérað í Hólshreppi

Frsm. annars minni hl. (Pjetur Ottesen):

Jeg skal ekki fjölyrða um þetta mál, vil að eins benda á það, að ástæður þær, sem jeg hefi bygt á niðurstöðu þá, sem jeg hefi komist að í þessu máli, eru skýrt og greinilega teknar fram í nál. á þgskj. 444, og vísa jeg hjer með til þeirra.