08.09.1919
Neðri deild: 58. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1965 í B-deild Alþingistíðinda. (2031)

140. mál, landhelgisvörn

Pjetur Jónsson:

Ef menn óska að vísa málinu til stjórnarinnar og telja, að áskorun til stjórnarinnar sje sterkari í þingsályktunarformi heldur en rökstudd dagskrá, þá stendur ekki á mjer að láta málið ganga til 3. umr., enda komi þá fram till. í þá átt.