13.08.1919
Neðri deild: 34. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1990 í B-deild Alþingistíðinda. (2068)

50. mál, eignaréttur og afnotaréttur fasteigna

Sveinn Ólafsson:

Mjer láðist áðan að svara þeirri athugasemd hv. frsm. (E. A.), að það mundi þurfa að breyta greininni talsvert, ef brtt. mín yrði samþ. Jeg sje ekki, að nauðsyn sje á annari breytingu en þeirri, að seinni hluti þessarar gr. byrji á nýrri málsgrein. Að öðru leyti fellur brtt. alveg inn í greinina. (E. A.: „Að hagnýta vatnorku“ þarf að breyta). Það kann að vera rjett, ef orðalagi brtt. er breytt; ella virðist það alveg óþarft.