18.09.1919
Neðri deild: 67. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1996 í B-deild Alþingistíðinda. (2084)

50. mál, eignaréttur og afnotaréttur fasteigna

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg hefi í rauninni ekki annað að segja en það, sem tekið er fram í framhaldsnefndaráliti allsherjarnefndar. Háttv. Ed. hefir gert tvær efnisbreytingar á frv. Fyrst þá breytingu, að binda uppsagnarfrest við í ár en ekki þó ár. Síðari breytingin er sú, að námarjettur sje ekki beinlínis undanþeginn í lögunum, heldur að ráðherra gefi leyfi.

Allsherjarnefnd þessarar deildar álítur þessar breytingar ekki svo verulegar, að fyrir þá sök sje ástæða til að breyta frv. aftur. Og leggur nefndin því til, að frv. verði samþ. óbreytt.