20.09.1919
Neðri deild: 69. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2039 í B-deild Alþingistíðinda. (2191)

144. mál, þingfararkaup alþingismanna

Frsm. (Magnús Pjetursson):

Eins og sjá má á framhaldsnál., leggur nefndin til, að frv. þetta verði samþ. óbreytt.

Að eins hefir hv. Ed. gert þá breytingu, að ferðakostnaður þm. á þessu þingi verði greiddur eftir reikningi.

En það er í rauninni engin breyting, því að við ætluðumst altaf til, að svo yrði, að afgangurinn yrði greiddur eftir reikningi.

Þetta er því að eins formsatriði, og vill nefndin því, að frv. verði samþ. með þessari breytingu.