23.09.1919
Efri deild: 63. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2148 í B-deild Alþingistíðinda. (2359)

153. mál, aðflutningsgjald af kolum

Halldór Steinsson:

Jeg hygg, að gleymst hafi að vísa máli þessu til nefndar við 1. umr., en þetta er svo stórt mál, að mjer finst óviðkunnanlegt, að það verði látið ganga nefndarlaust gegnum deildina. — Vil jeg því leyfa mjer að leggja til, að þessari umr. verði frestað og málinu vísað til fjárhagsnefndar.