13.08.1919
Efri deild: 29. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2181 í B-deild Alþingistíðinda. (2442)

102. mál, atvinnulöggjöf o. fl.

Frsm. (Guðjón Guðlaugsson):

Hjer liggur fyrir mjög greinilegt nál. Það er að vísu ekki nema 2 línur og er fljótlegt að sjá, að allsherjarnefnd hefir orðið ásátt um að ráða hv. deild til að samþykkja till. óbreytta. Engar athugasemdir hafa komið við till. hjer í hv. deild og heldur ekki í nefndinni, og mun því óþarfi að mæla fyrir henni.