14.07.1919
Neðri deild: 7. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í B-deild Alþingistíðinda. (245)

19. mál, vörutollur

Fjármálaráðherra (S. E.):

Það, sem jeg tók fram um glysvarninginn, var alls ekki í sambandi við ræðu háttv. þm. Dala. (B. J.). Jeg sagði það að eins af því, að mjer finst það leiðinlegt og órjettlátt, að ekki skuli vera hærri tollur á þeim vörum, en ástæðurnar eru þær, er jeg greindi áðan, of lítið tolleftirlit.